EKKERT DÝR Á AÐ ÞJÁST
- SKORAÐU Á STJÓRNVÖLD AÐ GERA BETUR Í EFTIRLITI MEÐ VELFERÐ DÝRA - |
NÝJAST FRÁ DÝRAVERNDARSAMBANDI ÍSLANDS (DÍS)
Undirskriftalisti - EKKERT DÝR Á AÐ ÞJÁST11. mars 2024
DÍS hefur hrundið af stað undirskriftasöfnun til að skora á stjórnvöld að bæta eftirlit með velferð dýra. Nauðsynlegt er að endurskoða lög og reglugerðir er varða velferð dýra sem fyrst og að stofnanir sinni lögbundnum skyldum sínum gagnvart dýrum. Of víða er illa búið að búfénaði á Íslandi og eftirlit yfirvalda í núverandi mynd veitir lítið aðhald. Þessu þarf að breyta. Undirskriftalistinn verður afhentur forsætisráðuneytinu. Lesa meira |
Vertu með í DÍS!Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) er
óháð félag dýravina. DÍS er málsvari dýra. Félagar í DÍS taka afstöðu með dýrum og velferð þeirra. Með því að gerast félagi eflir þú starf DÍS í baráttunni fyrir bættri velferð dýra í landinu. |
Þarftu aðstoð vegna dýrs?
GERAST
|
DÝRAVERNDARI ÁRSINSDÍS veitir viðurkenninguna Dýraverndari ársins og er veitt fyrir ötult starf í þágu velferðar dýra.
Steinunn Árnadóttir er Dýraverndari ársins 2022 Steinunn sýndi einstakt hugrekki, seiglu og áræðni í dýravelferðarmálum síðasta árið. Hugrekki Steinunnar að bjarga dýrum í sárri neyð hefur haft smitandi áhrif á almenning- að líta ekki undan þegar vart verður við illa meðferð dýra. |
ÚTTEKT DÍS
|
Undirskriftarlisti - bann við blóðtöku úr fylfullum hryssum
Þýsku/svissnesku dýravelferðarsamtökin AWF/TSB standa fyrir undirskriftarlista um að banna blóðtöku úr fylfullum hryssum hér á landi.
Blóðtakan og meðferð hryssanna stríðir gegn velferð þeirra. Jafnframt er lyfjaefnið sem framleitt er úr hormóni úr blóðinu notað í frjósemislyf að auka frjósemi dýra í þauleldi. DÍS styður undirskiftarlistann heilshugar. |
Munum eftir fuglunum í vetur
Á vefsíðu Fuglaverndar má finna upplýsingar um hvað má gefa fuglum, stórum sem smáum.
Fuglar, ekki síst smáfuglar, treysta á fóðurgjafir til að hafa veturinn af.
Fuglar, ekki síst smáfuglar, treysta á fóðurgjafir til að hafa veturinn af.
Saga DýraverndarsambandsinsDýraverndarsambandið (Dýraverndunarfélag Íslands) á merka sögu. Barátta félagsins fyrir velferð dýra hófst snemma á síðustu öld, en félagið var stofnað árið 1914.
Árið 1915 stóð félagið fyrir því að fyrstu lög um dýravernd voru sett á Alþingi. Félagið opnaði Dýraverndunarstöðina í Tungu í Reykjavík árið 1918 sem var skýli fyrir aðkomuhesta. Stöðin varð fljótt að dýraathvarfi og vísir að fyrsta dýraspítala landsins. |