NÝJAST FRÁ DÝRAVERNDARSAMBANDI ÍSLANDS (DÍS)
Framboð til stjórnar DÍS11. maí 2024
Þann 9. maí sl. rann út frestur fyrir fullgilda félaga í DÍS að bjóða sig fram til stjórnarsetu í sambandinu. Þau sæti sem kosið skal um á komandi aðalfundi þann 16. maí eru sæti ritara, gjaldkera og meðstjórnanda til tveggja ára og sæti meðstjórnanda til eins árs. Eftirfarandi framboð bárust til stjórnarsetu í DÍS. Lesa meira |
Vertu með í DÍS!Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) er
óháð félag dýravina. DÍS er málsvari dýra. Félagar í DÍS taka afstöðu með dýrum og velferð þeirra. Með því að gerast félagi eflir þú starf DÍS í baráttunni fyrir bættri velferð dýra í landinu. |
Þarftu aðstoð vegna dýrs?
GERAST
|
DÝRAVERNDARI ÁRSINSDÍS veitir viðurkenninguna Dýraverndari ársins og er veitt fyrir ötult starf í þágu velferðar dýra.
Steinunn Árnadóttir er Dýraverndari ársins 2022 Steinunn sýndi einstakt hugrekki, seiglu og áræðni í dýravelferðarmálum síðasta árið. Hugrekki Steinunnar að bjarga dýrum í sárri neyð hefur haft smitandi áhrif á almenning- að líta ekki undan þegar vart verður við illa meðferð dýra. |
ÚTTEKT DÍS
|
Undirskriftarlisti - bann við blóðtöku úr fylfullum hryssum
Þýsku/svissnesku dýravelferðarsamtökin AWF/TSB standa fyrir undirskriftarlista um að banna blóðtöku úr fylfullum hryssum hér á landi.
Blóðtakan og meðferð hryssanna stríðir gegn velferð þeirra. Jafnframt er lyfjaefnið sem framleitt er úr hormóni úr blóðinu notað í frjósemislyf að auka frjósemi dýra í þauleldi. DÍS styður undirskiftarlistann heilshugar. |
Munum eftir fuglunum í vetur
Á vefsíðu Fuglaverndar má finna upplýsingar um hvað má gefa fuglum, stórum sem smáum.
Fuglar, ekki síst smáfuglar, treysta á fóðurgjafir til að hafa veturinn af.
Fuglar, ekki síst smáfuglar, treysta á fóðurgjafir til að hafa veturinn af.
Saga DýraverndarsambandsinsDýraverndarsambandið (Dýraverndunarfélag Íslands) á merka sögu. Barátta félagsins fyrir velferð dýra hófst snemma á síðustu öld, en félagið var stofnað árið 1914.
Árið 1915 stóð félagið fyrir því að fyrstu lög um dýravernd voru sett á Alþingi. Félagið opnaði Dýraverndunarstöðina í Tungu í Reykjavík árið 1918 sem var skýli fyrir aðkomuhesta. Stöðin varð fljótt að dýraathvarfi og vísir að fyrsta dýraspítala landsins. |